Skip to Content

Þátttaka í atvinnutengdri endurhæfingu

Þátttaka í atvinnuendurhæfingu hentar þeim sem  hafa misst vinnu, standa höllum fæti á vinnumarkaði, eða hafa þurft að hætta störfum t.d. vegna sjúkdóma, slysa eða erfiðra félagslegra aðstæðna og vilja komast til vinnu a ný. Þeir fá aðstoð og stuðning í endurhæfingunni til þess að taka frumkvæði, vinna að markmiðum sínum og bæta stöðu sína gagnvart vinnumarkaði. Þeir vinna þar að því að efla sjálfa sig til líkama og sálar í samvinnu við aðra þátttakendur, auka þekkingu sína eða bæta við sig námi. Þá gefst þeim einnig kostur á að fara í starfsþjálfun á vinnumarkaði til þess að láta reyna á starfsþrek sitt og vinnugetu.

Tilvísun: Tilvísanir geta t.d. komið frá læknum, fagfólki félagsþjónustu, verkalýðsfélögum, Tryggingastofnun, Vinnumálastofnun og fleiri.

Umsókn: Þegar umsókn hefur borist hefur starfsfólk Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar samband við umsækjandann og býður honum kynningarviðtal. Áður en hann hefur þátttöku þarf að hafa borist tilvísun frá fagaðila til stuðnings umsókn hans.

Umsóknir og tilvísanir sendist til Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar, Pósthólf 89, 222 Hafnarfjörður. 

Eyðublöð fyrir umsóknir og tilvísanir má sækja vinstra megin á þessari síðu. Þau má hvort heldur sem er fylla út í tölvu fyrir prentun eða "handvirkt" eftir prentun.