Þátttakendur
geta hætt í endurhæfingu og hafið störf á vinnumarkaði hvenær sem þeir eru
tilbúnir til og tækifæri gefast.
Þjónustuleiðir:
I. Stuðningur á biðtíma
Getur staðið til boða fyrir verðandi þátttakendur ef sýnt er að bið eftir þjónustu er lengri en tveir mánuðir. Unnið í samvinnu við tilvísunaraðila. Umsækjendum er gefinn kostur á að vera í sambandi við ákveðinn tengilið hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar og þátttöku í líkamsrækt og á völdum námskeiðum ef pláss leyfir.
II. Grunnleið
Er upphafsleið þátttakenda sem taldir eru þurfa langtímaendurhæfingu. Þar er unnið að því að trú þeirra vaxi á eigin getu til þess að hafa áhrif á líðan sína og velferð. Þeir fá aðstoð við að leggja mat á stöðu sína og styrkleika og hjálp við að setja sér raunhæf markmið, velja færar leiðir, átta sig á hindrunum og takast á við þær. Þátttakandinn tilheyrir hópi fólks sem vinnur saman að settum markmiðum.
Megin áhersla í endurhæfingunni er á hópefli, sjálfseflingu, markmiðasetningu og hreyfingu. Ýmis konar matstæki eru notuð til þess að meta frekari þjónustuþörf og oft leitað aðstoðar sérfræðinga utan Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar.
Að loknu undirbúningstímabili skiptist hópurinn og þátttakendur fara mismunandi leiðir í endurhæfingu sinni.
III. Námsleið l
Hentar þeim sem stefna á nám að lokinni starfsendurhæfingu. Formlegt nám er stór hluti endurhæfingar þeirra og nær það yfir tvær annir. Kennd eru námskeið á framhaldsskólastigi í íslensku, ensku og stærðfræði. Kennsla og námsmat er í höndum framhaldsskólakennara frá Flensborgarskóla en kennt er í starfsstöð Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar.
Þátttakendur eru einnig í hópefli, heilsutengdri fræðslu og líkamsrækt. Þeir fá kennslu í námstækni og eiga kost á áhugasviðsgreiningu.
IV. Starfsleið l – markviss undirbúningur fyrir
atvinnuþátttöku
Hentar þeim sem vilja styrkja sig fyrir atvinnuþátttöku með markvissri áherslu á að efla sig bæði líkamlega og andlega jafnframt því að reyna fyrir sér á vinnumarkaði. Þátttakendur á starfsleið eru á námskeiði um vinnumarkaðinn, sjálfseflingu, markmiðasetningu og líkamsrækt og fara í starfsþjálfun á vinnumarkaði. Þeir eiga þess einnig kost að styrkja menntunargrunn, rifja upp eða bæta við sig þekkingu með stökum námskeiðum.
Fjármálanámskeið og fjármálaráðgjöf er í boði fyrir þá sem á þurfa að halda.
Þátttakendur tilheyra hópi sem vinnur að sameiginlegu markmiði og deilir reynslu sinni og upplifun á því ferli. Þeir geta einnig tekið þátt í heilsueflandi fræðslu.
V. Heil og sæl
Heilsueflingarlína sem hentar þeim sem þurfa að gera mikilvægar breytingar á daglegum venjum heilsu sinnar vegna eigi þeim að takast að fara út á vinnumarkaðinn aftur. Skilyrði fyrir þátttöku eru að þeir hafi bæði vilja og getu til þess að vinna að því á markvissan hátt. Áhersla lögð á heilsutengda fræðslu, sjálfseflingu, mataræði, hreyfingu, reykleysi og markmiðavinnu. Líklegt er að þátttakendur þurfi verulega sérfræðiaðstoð.
VI. Námsleið II / Starfsleið ll með eftirfylgd
Hentar þeim sem þurfa ekki eins víðtæka endurhæfingu og er í boði á námsleið/starfsleið l. Þátttakendur geta verið í námi annars staðar og/eða í vinnu en þurfa stuðning í formi viðtala, eða hópfunda/-handleiðslu. Þeir eiga einnig kost á að sækja fræðslufyrirlestra.
VII. Eftirfylgd
Eftirfylgd að endurhæfingu lokinni. Stuðningur og hvatning er veitt í markmiðavinnu og aðstoð
fyrstu skrefin á vinnumarkaði eða í námi. Felst í einstaklingsviðtölum og / eða
hóptímum undir stjórn starfsmanna Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar.
VIII. Sérsniðin þjónusta
Mögulegt er að sérsníða þjónustu í samvinnu við tilvísandi aðila og þátttakanda sjálfan ef engin ofantalinna þjónustuleiða þykir henta.
Þátttakendur geta hætt í endurhæfingu og hafið störf á vinnumarkaði hvenær sem þeir eru tilbúnir til og tækifæri gefast.