Skip to Content

Einstaklingsmiðuð endurhæfing

Endurhæfingin 

Endurhæfingin er einstaklingsmiðuð og þátttakendur fara ekki allir sömu leið eða á sama hraða. Frá upphafi endurhæfingarinnar tengist hver þátttakandi ákveðnum hópi jafnhliða því sem hann vinnur að eigin markmiðum í samvinnu við þá fagaðila sem hann þarf á að halda. Tilgangur hópvinnunnar er að mynda tengsl milli þátttakenda og skapa þeim bakland þannig að þeir nái að byggja sig upp og eflast í samvinnu við aðra. Stefnt er að vaxandi sjálfstæði þátttakenda eftir því sem á líður endurhæfinguna.

Reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins þátttakanda eftir því sem kostur er. Þeim er hjálpað að átta sig á eigin stöðu, vinnugetu, námsþörfum og möguleikum. Haldin eru ýmis grunnnámskeið og einnig gefst þeim kostur á námstengdri endurhæfingu. Sem dæmi um aðra þjónustu sem getur staðið til boða má nefna félagsráðgjöf, fjármálaráðgjöf, iðjuþjálfun, næringarráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf, ráðgjöf sjúkraþjálfara og sálfræðiviðtöl.

Allan endurhæfingartímann eru þátttakendur í reglulegum stuðningsviðtölum hjá ákveðnum ráðgjafa Starfsendurhæfingarinnar og fá hvatningu og aðhald við að vinna að markmiðum sínum. Þeir fá aðstoð við atvinnuleit eða að velja sér nám við hæfi og geta hætt í endurhæfingu og hafið störf á vinnumarkaði hvenær sem þeir eru tilbúnir til. Því geta þeir verið misjafnlega lengi í endurhæfingu, allt eftir þörfum hvers og eins og eðli endurhæfingarinnar.

Starfsþjálfun á vinnumarkaði er einn hluti endurhæfingarinnar. Þar hafa þátttakendur tækifæri til þess að láta reyna á vinnufærni sína og vinnuþrek eða prófa nýjan starfsvettvang ef þeir þurfa að skipta um starf heilsu sinnar vegna.

Eftir að eiginlegri endurhæfingu lýkur eiga þátttakendur kost á eftirfylgd.