Skip to Content

ENDURHÆFINGIN

Hugmyndafræði 

Áhersla er lögð á virkni þátttakenda og ábyrgð þeirra sjálfra á eigin velferð. Þeir fá aðstoð fagfólks starfsendurhæfingarinnar við að leggja mat á stöðu sína og setja sér markmið og unnið er að heildstæðri úrlausn mála með hverjum þátttakanda eftir því sem kostur er. Við teljum mikilvægt að nýta til þess þau úrrræði sem þegar eru til staðar í nærsamfélaginu svo sem í heilbrigðis-, félags-, og menntakerfinu og að með því að koma á eða auka samvinnu milli ólíkra kerfa megi hámarka árangur þjónustunnar sem þau geta veitt. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á samstarf við alla sem geta lagt lóð sitt á vogarskálarnar til þess að þátttakendur nái árangri í endurhæfingunni og geti gert þær breytingar á lífi sínu sem þeir stefna að. Starfsmenn Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar eru tengiliðir milli þátttakenda og þess fagfólks í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem hefur með málefni þeirra að gera og þeir eru áfram í sambandi við

Meðal fagfólks og stofnana sem koma að starfinu má nefna félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, náms- og starfsráðgjafa, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, Flensborgarskólann,  aðrar menntastofnanir, kennara og námskeiðshaldara.

Endurhæfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Markmið endurhæfingarinnar

  • Aukin lífsgæði þátttakenda og fjölskyldna þeirra
  • Að þátttakendur komist í vinnu eða nám til þess að styrkja stöðu sína gagnvart vinnumarkaði
  • Að endurhæfingin fari fram í heimabyggð.