Skip to Content

Stjórn og starfsfólk

 

Stofnendur

Hafnarfjarðarbær

Sjúkraþjálfarinn ehf

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Verkalýsfélagið Hlíf

 

Stjórn

Birna Ólafsdóttir, Geir Jónsson, Gunnar Viktorsson, Karl Rúnar Þórsson og Kolbeinn Gunnarsson

 

Starfsmenn

Anna Guðný Eiríksdóttir annagudny@stendur.is

Anna Guðný lauk BSc námi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands og hefur diplóma í Fræðslustarfi og stjórnun og MA próf í Uppeldis- og menntunarfræði frá sama skóla. Hún nam handleiðslutækni hjá Endurmenntunarstofnun HÍ.

Áður en hún hóf störf hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar var Anna Guðný sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfaranum ehf. Hún er framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar.

 

Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir elsa@stendur.is

Elsa Sigríður lærði iðjuþjálfun í Noregi , tók BSc próf í iðjuþjálfun í Háskólanum á Akureyri og Masterspróf frá Heilbrigðisdeild sama skóla.

Elsa var einn af frumkvöðlunum að stofnun BYRS starfsendurhæfingar á Húsavík sem síðar varð að Starfsendurhæfingu Norðurlands. Hún er í hlutastarfi hjá okkur og starfar einnig hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra í Hafnarfirði við iðjuþjálfun barna.

 

Jón Ingi Hákonarson jon@stendur.is

Jón Ingi útskrifaðist sem leikari frá Lundúnum 2001 og hefur unnið við leiklist bæði sem leikari, leikstjóri og kennari. Hann lauk MBA námi í viðskiptum og stjórnun árið 2010 frá Háskólanum í Reykjavík og mun ljúka meistaranámi í viðskiptafræði í sumar (2011) frá Háskóla Íslands. Meðfram námi hefur hann starfað hjá Námsflokkum Reykjavíkur við kennslu og námskeiðahald. 

 

Kolbrún Ragnarsdóttir kolbrun@stendur.is

Kolbrún lauk prófi í iðjuþjálfun í Kaupmannahöfn. Hún hefur viðamikla viðbótarmenntun meðal annars á sviði sálrænnar meðferðar, fjölskyldumeðferðar, handleiðslu og markþjálfunar. 

Kolbrún hefur starfað sem kennari, iðjuþjálfi, handleiðari, ráðgjafi og meðferðaraðili bæði sjálfstætt og í opinbera- og einkageiranum. Hún er í hlutastarfi hjá okkur og starfar jafnframt á eigin meðferðarstofu og sem ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

 

Sveindís Jóhannsdóttir sveindis@stendur.is

Sveindís stundaði nám í sálfræði og félagsráðgjöf til starfsréttinda við Háskóla Íslands (HÍ)og stundar nú MA nám í félagsráðgjöf við HÍ.

Sveindís hefur fjölþætta reynslu úr ýmsum þjónustukerfum hins opinbera og einkageiranum. Áður en hún hóf störf hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar starfaði hún hjá Samvinnu, starfsendurhæfingu Suðurnesja. Hún er í hlutastarfi hjá okkur og starfar einnig á eigin félagsráðgjafarstofu í Garðabæ, Félagsráðgjafanum.

 

Auk fastra starfsmanna kemur að starfinu margt fagfólk frá samstarfsaðilum s.s. Félagsþjónustu Hafnarfjarðar, Flensborgarskólanum, Sjúkraþjálfanum ehf og fjöldi sjálfstætt starfandi sérfræðinga, listamanna og fræðsluaðila.