Aðsókn hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar er mikil og starfsfólk er að leggja lokahönd á inntöku nýrra þátttakenda. Inntökuviðtölum er að mestu lokið og ætlunin er að ljúka þeim sem eftir eru í fyrstu viku janúar. Athyglisvert er að körlum hefur fjölgað verulega í hópi umsækjanda.
Á vormánuðum verða þrjár meginleiðir í gangi: Grunnleið, Starfsleið og Námsleið. Fyrstu þátttakendur í gang verða þátttakendur sem halda áfram í atvinnuhópi, þeir mæta 5.janúar. Námshópur, Grunnleið og nýir þátttakendur á Starfsleið koma til hópfunda í viku 2 og 3 og verða boðaðir sérstaklega.